09.01.2012 15:27
1277 Ljósafell SU 70
Skrifað af Þór Jónsson
02.01.2012 16:29
1413. Arnþór
Arnþór að landa síld á Djúpavogi fyrir þó nokkuð mörgum árum, þar sem myndin er tekin að vori var þetta sennilega smugusíld á leið í bræðslu en það kom svolítið af henni á Djúpavog þegar mikið aflaðist af henni.
Skrifað af Þór Jónsson
30.12.2011 15:55
Stefnin þrjú
Þessi einfalda en litríka mynd er í miklu uppáhaldi hjá mér, eins og flestar myndir sem sýna það mikla líf sem gat verið í höfninni þegar allt var í fullu fjöri, höfnin full af skipum, ókunnug andlit hvert sem litið var þó að sum þekkti maður með tímanum.
Skrifað af Þór Jónsson
29.12.2011 22:35
1474. Gullberg
Þessi varð seinna Otto Wathne og bar það nafn í nokkur ár, en veit einhver hvað varð af honum eftir veruna á Íslandi?
Skrifað af Þór Jónsson
28.12.2011 17:40
11. Sandafell
Í upphafi Arnfirðingur RE 212 smíðaður í Noregi 1963 og hefur farið vítt um landið, seinni nöfn Sandafell GK, SandafellSU og svo er það Freyr ÁR , Freyr ÓF og aftur Freyr ÁR, Freyr GK, og Freyr ÞH og í það síðasta Siggi Þorsteins, en hvað varð um þennann veit ég ekki, þessi mynd er tekin á rækjumiðum austur af Grímsey sennilega 1986.
Skrifað af Þór Jónsson
24.12.2011 14:03
Jólakveðja
Gleðileg jól til ykkar sem þetta skoða og hafa heimsótt mig á árinu, og vonandi að það hafi verið gagn eða gaman, kær kveðja Þór.
Skrifað af Þór Jónsson
22.12.2011 20:20
692. Mýrdælingur SU 101
Það er að verða lítið eftir af Mýrdælingi gamla þar sem ég gekk fram á hann í dag, en brimið hefur verið duglegt að brjóta hann niður og flestir málmhlutir horfnir í sandinn, nema lúgukarmurinn og eitthvað smálegt sem gæti verið úr honum en vél og stærri hlutir ekki sjáanlegir lengur.
Skrifað af Þór Jónsson
22.12.2011 13:04
Brottför
Og þá er gleði helgarinnar að baki, og alvaran tekur við, en þessar myndir eru teknar þegar þessi sömu skip og eru á myndinni á undan, fara til veiða og sennilega eru menn misbrattir eftir helgina, en alltaf gott að komast á sjóinn aftur þó að það geti nú samt verið svolítið gaman í landlegum meðan fjörið stendur yfir.
Skrifað af Þór Jónsson
21.12.2011 23:15
Horfin skip
það er ekki mikið eftir af þessum flota í landinu og þegar búið að rífa suma, eða amk Þórshamar og Sunnutind en ekki veit ég hver eru afdrif Júpiters og Grindvíkings, en Svalinn er alltaf þarna þó skip komi og fari.
Skrifað af Þór Jónsson
19.12.2011 22:43
2530. Svanur
Í höfn á Djúpavogi fyrir nokkrum árum, en þessa var ég að skanna fyrir nokkrum mínútum og er nokkuð sáttur við hana, en það hefur ekkert gengið með skannann fram að þessu þar sem nýju tölvurnar mínar hafa ekki viljað gangast við honum, en nú gengur allt eins og það á að gera.
Skrifað af Þór Jónsson
13.12.2011 13:27
1424. Þórsnes
Þessi fallegi Íslenski bátur er þarna að landa síld á Djúpavogi á árunum 83 - 84 og kom nokkuð oft, enda síldin tekin í Berufirðinum á þessum tíma og eins í fjörðunum fyrir austan.
Skrifað af Þór Jónsson
12.12.2011 15:38
1371 Hannes Andrésson
Þessi er búinn að vera víða og heita mörgum nöfnum, en uppvaflega var hann Vingþór NS og er smíðaður á Seyðisfirði 1974 og sá ég hann nýjann og þótti þetta vera fallegur bátur, en get nú ekki sagt það sama í dag.
Skrifað af Þór Jónsson
21.11.2011 21:42
1395. Kaldbakur
Þessi gamli jálkur er búinn að endurheimta nafnið sitt en vantar gamla ÚA litinn, en vonandi samt ekki sama útlit og á þessari mynd, en nýi liturinn er samt bara fínn.
Skrifað af Þór Jónsson
Flettingar í dag: 104
Gestir í dag: 52
Flettingar í gær: 241
Gestir í gær: 134
Samtals flettingar: 85289
Samtals gestir: 37217
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 17:00:01
